Sjúklega FYNDIÐ!!
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
16.01.2007 22:34:40 / kkkson

Hittingur á næsta fimmtudag!!!

Ég nenni ekki að bíða eftir því að fólk segi nákvæmlega hvaða dagur og tími hentar svo ég ég ætla bara að negla þetta fast. Dagur: Fimmtudagurinn 18. janúar 2007 Tímasetning: 20:00 Staður: Ruby Tuesday á Höfða(pöntum bara stóra borðið) ALLIR SEM KOMAST EÐA KOMAST EKKI GETA KOMMENTAÐ SVO ÞAÐ SÉ ON THE CLEAN EÐA Á HREINU EINS OG ÉG KÝS AÐ KALLA ÞAÐ. og þið megið byrja......... ........... ......... ........ . ... .. .... . . . . . ....... . . . . . .. .. . . ... NÚNA! (b.t.w. Ef það eru einhverjar athugasemdir (Ef þið vitið t.d. um gegt góðan stað sem þið viljið frekar fara á þá megið þið endilega kommenta)

Þeir sem staðfesta hafa komu:

HANNA LILJA
KOLBEINN KARL
PÉTUR
HULDA
SUNNA
ATLI (held ég?!)
ÍRIS TINNA
ÍRIS STELLA
BJARMA
DAGRÚN
VILLI
KRISTÍN

» 21 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 17:48:18 / Huldan

HITTINGUR!!


Hvað með að hittast á morgun eða
fimmtudag? .. þá getum við allavegana
haft Hönnu með? 8):D


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 20:52:56 / kkkson

Jæja jæja

Jæja jæja þá skrifa ég fyrstu færsluna í u.þ.b. hálft ár. Jes þið heyrðuð rétt HÁLFT ár. Hvað hefur gerst síðasta hálfa árið hjá okkur? ábyggilega rugl margt og er því ekki kominn tími á að skella sér í partýskóna og hittast, taka kannski einn Harry Harry og létt spjall? Ég veit það allavegana að ég er til í að hittast!!! Hvað með ykkur? Er ekki stemmari í liðinu. hmm það les náttla enginn þetta blogg lengur svo það er spurning um að mar smessi bara smsi á liðið og segi þeim frá færslunni. Jæja good people ég er farinn á vit ævintýranna en ef þið eruð til í hitting þá skelleð þeð bara enn kommente henna ferer neðan og kjellenn reddar þessu!!! kveðja, Kolbeinn Karl aka Kristinsson

» 14 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 18:44:27 / Sasha

Árið 2006

Þú veist að það er 2006 ef.....


1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
 


2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.


3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að
því
þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .


4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara
á takkann á sjónvarpinu.
 



6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.


7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.


8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
 



9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.


10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.


11. Svo hlærðu af heimsku þinni.


12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á
framfæri
einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú
féllst
fyrir þessu.



Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!


En, ef þú bíður of lengi,
mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En
vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun. 0 )


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 00:48:03 / Gummi K

Lélegar hugmyndir

Jæja, núna hefur maður ekki bloggað í fáránlega langann tíma. Þannig að það er kominn tími á þetta.
Núna síðustu daga hef ég verið að vinna á fullu við að slá gras ásamt bróðir mínum og á þeim tíma höfum við fengið alveg fáránlega margar virkilega lélegar hugmyndir.
Ég meira að segja eyddi hálfu gærkvöldinu í að þróa eina af þessum rosalega lélegu hugmyndum. Og mig langar til að segja ykkur frá nokkrum þeirra
1. Að hanna hrífu sem rakar gras, en er með svona innbygðjum hitara en hefur engann hitastoppara þannig að hann bræðir úr sér og eyðileggur þar með hitarann. (þessi er voðalega léleg)
2. Að bjóða upp á garðsláttur í trúðabúningum, þetta er líka rosalega léleg hugmynd sem okkur langar að framkvæma, Slá garða hjá fólki í trúðabúningum gegn vægu gjaldi
3. Að taka lán upp á háa upphæð og lána öðrum síðan peningana með engum vöxtum.
4. Síðasta hugmyndin sem ég ætla að segja ykkur frá Svona stór Krani með 4 krönum í staðinn fyrir einum eins og er gert venjulega, en það væri bara hægt að nota einn kranann í einu, þannig að þá væri maður bæði að borga óþarfa starfsmönnum laun, og borga aukalega fyrir 3 auka kranana, Endilega látið mig vita ef þið eruð með fleiri svona virkilega lélegar hugmyndir.

Gvendur


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 19:20:38 / birnadis

Jæja..

Góðan dag/gott kvöld/góða nótt (fer eftir því hvenær þið lesið þetta) gott fólk.
Hvað segiði þá??
Það var farið að fara svo í taugarnar á mér að kíkja hérna inn á hverjum degi, alltaf eru yfir 20 heimsóknir en enginn skrifar neitt.. Svo ég ákvað að skrifa eitthvað :D

Það sem mig langar að vita er hvenær þið eruð búin í prófum? Hvenær hefur fólk dauðan tíma til að kíkja á kaffihús eða eitthvað? Þetta er alveg út í hött hvað við hittumst lítið.
Ég reyndar beilaði á skautaferðinni, var upptekin þann dag. Var góð mæting?

Annað sem mig langaði að segja ykkur er að einhverntíman í lok júní eða byrjun júlí ætla ég að halda upp á afmælið mitt einhverstaðar upp í sveit. Ég átti reyndar afmæli í apríl, en ákvað að svindla smá og ætla að bjóða öllum sem ég þekki í útilegu á eitthvað gott tjaldsvæði. Kassagítar, lopapeysur, varðeldur og allur pakkinn. Og ég geri ráð fyrir ykkur öllum, bara svo það sé á hreinu ;)
Ég læt auðvitað vita nánar um þetta þegar nær dregur :)

En ég læt þetta nægja í bili, get þá hætt að láta það fara í taugarnar á mér að enginn skrifi neitt.

-Birna Dís

ps. Hvað varð um Gleðipistil Gumma og Bergs??? ég gerði sterklega ráð fyrir því að fá allavega einn pistil á meðan prófin eru í gangi ;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 17:50:37 / Pétur

Nýtt email

Sæll verið fyrir fólkið

Það var hörku mætting á föstudaginn, vildi samt geta sagt það um 505 hópinn hmm:klikk::^)
Ne jæja nóg um það, ég vildi bara láta vita ða ég er kominn með nmýtt email og það er peturarn@hotmail.com

Endinlega addið mér á msnin ykkar :D
Heyrumst

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 18:23:20 / Vignirs

Dale Hittingur á föstudaginn

Nú er komið að því við hittumst öll og rifjum upp reglurnar, setjum markmið og gerum okkur glaðan dag:)

Þetta er fyrir alla sem hafa útskrifast á Næstu kynslóð námskeiðunum og ég vonast til þess að sjá ykkur sem flest ........ næsta föstudag 21.apríl kl.17 í Þróttaraheimilinu í Laugardalnum. Dagskráin er í 2 klt.


Þetta verður bara gaman og ég skora á ykkur að mæta, rifja upp Dale og hitta gamla vini:)


Hlakka til að heyra í ykkur og látið mig endilega vita hvort þið komist eða ekki (upp á fjöldann).


Bestu kveðjur,
Vignir


» 14 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 13:52:24 / Villti tryllti Villi

hotmail er dreschl



ég sendi email á ykkur í gær (þ.e.a.s. þeir sem voru með skráð email hér á síðunni)

þið sem eruð með hotmail...

þetta fór í junk mail, farið og finnið þetta og lesið þetta...

NÚNA!

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 20:04:25 / Pétur

Loksins loksins

Loksins get ég byrjað að blogga. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það er búið að vera brjálað að gera. Ég er stundum búinn að þufa að vaka í 45 tíma og það getur verið pain til lengdar. Ég er buinn að taka helling upp útum allt land. Núna var ég einmitt að koma frá Hvolfsvöllum og var að aðstoða skólafélaga minn að taka upp lokaverkefnið hans, Camerumaður ::) . En núna er þetta allt saman að klárast, fríið er bara á næsta horni, og ég vill endinlega...... nei ég krefst þess að við förum að hittast, öll með tölu!!
Ég veit að þetta kemur kanski úr verstu átt en ég ætla að byrja að standa mig.

Ég er komin með GSM síma loksins í lag og númerið er 8642921
Ef ykkur leiðist eða þurfið eitthvern til að tala við þá bara endinlega bjallið í mig :D

oki Pétur kveður að sinni.:klikk:

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 19:35:09 / Villti tryllti Villi

Fresco!

Hæbbsí!!!

umm... ég get ekki beint kallað þetta eitthvað nýjar fréttir...

EN...

Ég er kominn með samning hjá Radisson SAS, Hótel Sögu og byrja að vinna þar 6.júní og verð að vinna það næstu 3 ár (cool)

en síðan er annað, ég og Höddi vorum að pæla hvort að einhver væri einn heima á næstunni eða eiithvað og við vorum barta pæla að gera eitthvað hresst eins og að fara í singstar keppni eða bara hittast og catch up!!!

ef það er enginn í þeirri aðstöðu að gera þetta þá getum við alltaf reynt að plögga þessu öðruvísi...

WHAT DO YOU SAY?

er þetta spennandi?

» 9 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 13:08:02 / Vignirs

Ísland í bítið, strákarnir að gera góða hluti

Til hamingju Gummi og Bjarki með háskólablaðið.  Fylgdist með ykkur í morgunsjónvarpinu í morgun.  VEL GERT!  Frábært að fylgjast svona með ykkur og eitthvað segir mér að þetta er ekki það síðasta sem að þessi frábæri hópur á eftir að gera í framtíðinni.

Hvet alla til að kíkja á þáttinn á www.visir.is, Ísland í bítið, 4.4.2006.

Eldmóðskveðja,
Vignir


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 23:05:22 / Gummi K

Jæja fólk

Núna ætlar kappinn að fara að verða duglegri að blogga á þessari síðu, þannig er bara mál með vexti að það er búið að vera talsvert meira en brjálað hjá mér að gera síðustu vikur/mánuði út af skólanum, og getið þið öll sem eruð í skóla, séð hvers vegna það er búið að vera mikið að gera hjá mér. Því blaðið sem ég er búinn að vera að gera kemur á mánudaginn í skólana ykkar. Reyndar tekur ekkert skemmtilegra við en 10 stúdentspróf, þannig að maður hefur kannski ekkert alltof mikinn tíma til aflögu, en ég tilkynni það allaveganna fyrir hönd mína og Bergs að við munum kíkja á skautana ef að við verðum ekki uppi í bústað að læra. Við stefnum á að fara á laugardeginum en við verður sennilega að fresta því fram yfir skautaferðina.... Hverjir eru annars að fara að mæta ???

» 7 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 10:14:58 / Huldan

Hæ aftur!

Eru ekki allir hressir? Allavegana, mér ásamt fleirum finnst kominn tími til að við förum að hittast, enda frekar langt síðan að við hittumst seinast, sem gengur engangveginn. Svo að ég og Ágúst erum búin að leggja okkur fram við að finna dag og skipuleggja hvað við gætum gert. Og niðurstaðan er þessi:

Laugardaginn 8 Apríl er dagurinn! Það er mæting kl 18:00 í skautahöllina og þar á eftir förum við út að borða!

ENGAR afsakanir mótteknar, bara mæta!!!!

Sjáumst hress og kát (:

kv Hulda og Ágúst.


» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12